VIRKJUN NEMENDA FYRIR 21. ÖLDINA
Í stað þess að sjá börn út frá normalkúrfu—sumir krakkar eru klárir og aðrir minna klárir—sér Leiðtoginn í mér (Leader in Me) viðmiðið að hvert barn hefur hæfileika til að vera leiðtogi.
Leiðtoginn í mér, sem grundvallast á 7 venjum til árangurs, er heildrænt umbreytingarlíkan fyrir skóla sem samþættir gildi forystu og skilvirkni inn í námsskrá skólans með notkun almenns tungutaks sem hæfir aldri nemenda.
Leiðtoginn í mér er ekki atburður og ekki námsefni, heldur er það leiðtogaþróun sem felur í sér fullkomna samþættingu—þ.e. alls staðar og alltaf. Í stað þess að „kenna leiðtogahæfni hvern þriðjudag klukkan 13:00“ gera kennarar leiðtogaþjálfun hluta af öllu sem þeir gera. Eins og kennararnir segja: „Þetta snýst ekki um að gera enn einn hlutinn, heldur snýst þetta um að gera það sem þú gerir nú þegar með betri hætti“.
SKÓLAR SEM NOTA LEIÐTOGINN Í MÉR FERLIÐ GREINA FRÁ EFLINGU NEMENDA HVAÐ VARÐAR:
-
Sjálfstraust
-
Hópvinnu
-
Frumkvæði
-
Ábyrgð
-
Sköpunargleði
-
Forystuhæfileika
-
Samskipti
-
Vitund um menningarlegan fjölbreytileika
LEIÐTOGINN Í MÉR FERLIÐ LEIÐIR TIL:
-
Bættrar skólamenningar.
-
Minnkunar agavandamála.
-
Aukningar í þátttöku kennara og aðkomu foreldra.
Skólar og börn




Aðrir áhrifamiklir valkostir til árangurs
Umbreytingarferli árangursríkrar menningar. 3ja daga vinnustofa, 360° mat, vönduð námskeiðsgögn, App, markþjálfun (peer and team coaching).
Eins dags vinnustofa til aukins árangurs teyma - með 360° mati, íslenskum kennslugögnum, snallforriti ofl.
Tveggja daga vinnustofa til aukins árangurs stjórnenda. 360° mat, vönduð kennslugögn, peer coaching ofl.
Einsdags vinnustofa fyrir leiðtoga til innleiðingar á árangursríkri menningu með aðferðum markþjálfunar (coaching). Mjög vönduð kennslugögn, markþjálfun, persónulegar vefsíður, snjallforrit ofl.
Þriggja daga vinnustofa um forystu með einskaklega vönduðum gögnum, LQ (Leadership Quotient) mati, hljóðbók, myndböndum, handbókum stjórnenda, markþjálfun (peer coaching) ofl.