top of page
Þjónustustjórnun

Nánar um lausn

Vefsíða - Customer Loyalty

Spjalla við ráðgjafa

Please reload

Þjónustustjórnun

Tryggðu tryggð viðskiptavina
Kritinn Tryggvi Gunnarsson
„Komdu ávallt fram við starfsfólk  þitt með þeim hætti sem þú vilt að það komið fram við viðskiptavini þína.“  - Stephen R. Covey
Stephen R. Covey

Vertu fyrst viss um að vinna hjörtu þeirra sem þjóna viðskiptavinum þínum.  Meira en 70% af upplifun viðskiptavina stýrist af viðmóti og framkomu framlínustarfsmanna.  Ef þeir eru ákafir talsmenn vöru ykkar og þjónustu, eru viðskiptavinir þínir líklegri til að vera líka sannir talsmenn ykkar.  Starfsmenn þurfa að upplifa að þeir séu meðlimir sigurliðs sem þjónar mikilvægum tilgangi.  Það kallar á öfluga forystu að hanna, hvetja og leiða slík teymi.

Einsdags vinnustofa FranklinCovey um þjónustustjórnun – Tryggðu tryggð viðskiptavina (Leading Customer Loyalty) er ætluð framlínustjórnendum sem læra ný viðhorf og færni til að auka helgun starfsmanna og viðskiptavina.  Stjórnendur öðlast skýran skilning á hvernig má vera fyrirmynd góðrar þjónustu með því að leiða sín teymi með skilningi, ábyrgð og gjöful samskipti að leiðarljósi.  Stjórnendur öðlast færni í að kenna og efla framúrskarandi þjónustu með sex nauðsynlegum aðgerðum:

  1. Að tengjast með mannlegum og sönnum hætti

  2. Að hlusta til að læra

  3. Að uppgötva hvaða verk þarf í raun að vinna

  4. Að fylgja málum eftir til að styrkja sambandið

  5. Að deila upplýsingum til að hjálpa öllum að vinna

  6. Að fara fram úr væntingum með óvæntri viðbót

Námskeiðið fer fram með virkri þátttöku, gagnlegum æfingum og lærdómsríkum raundæmum.

Þjónustustjórnun
Þjónustustjórnun

Á vinnustofu FranklinCovey um þjónustustjórnun munu stjórnendur læra að þjálfa teymi sín í

  • Að tengjast með mannlegum og sönnum hætti

  • Að hlusta og miðla með skilningsríkum hætti

  • Að uppgötva hvaða verk þarf í raun að vinna fyrir starfsmenn og viðskiptavini

  • Að fylgja málum eftir til að leysa og fyrirbyggja mál

  • Að gefa áhrifaríka endurgjöf sem byggir upp fólk

  • Að hvetja teymið til að deila sinni bestu hugsun og hugmyndum

  • Að leiða árangursríka teymisfundi um þjónustu.

 

Stjórnendur  læra að leiða 11 teymisfundi („Team Huddles“) og þjálfa liðsmenn

með því að nýta sér

  • Handbók leiðtoga

  • Æfingarspilastokk

  • Dæmisögur

  • Bókina „It´s who you are“

  • Aðgangi að myndböndum

Nánari upplýsingar veitir Þóra Sif Svansdóttir, þjónustustjóri FranklinCovey á Íslandi – thora@franklincovey.is og í síma 775-7077.

Þjónustustjórnun

Aðrir áhrifamiklir valkostir til árangurs

Umbreytingarferli árangursríkrar menningar.  3ja daga vinnustofa, 360° mat, vönduð námskeiðsgögn, App, markþjálfun (peer and team coaching).

Eins dags vinnustofa til aukins árangurs teyma - með 360° mati, íslenskum kennslugögnum, snallforriti ofl.

Tveggja daga vinnustofa til aukins árangurs stjórnenda.  360° mat, vönduð kennslugögn, peer coaching ofl.

Einsdags vinnustofa fyrir leiðtoga til innleiðingar á árangursríkri menningu með aðferðum markþjálfunar (coaching).  Mjög vönduð kennslugögn, markþjálfun, persónulegar vefsíður, snjallforrit ofl.

Þriggja daga vinnustofa um forystu með einskaklega vönduðum gögnum, LQ (Leadership Quotient) mati, hljóðbók, myndböndum, handbókum stjórnenda, markþjálfun (peer coaching) ofl.

Leiðtogalotur - LEADERSHIP MODULES

6 hálfsdags sjálfstæðar vinnulotur um lykilviðfangsefni leiðtoga - Stefna, Traust, Ferli, Fólk, Fjölbreytileiki, Umbætur.  Vinnubækur, verkfæri og myndbönd auk LQ mats

Please reload

bottom of page