top of page

Farsæl framkvæmd stefnu með 4Dx

Expectus og FranklinCovey eru í stefnumarkandi samstarfi með 4Dx.

Nánar um lausn

Vefsíða - The 4 Disciplines

Spjalla við ráðgjafa

Please reload

Farsæl framkvæmd stefnu með 4Dx
stefnumarkandi samstarf
FRAMKVÆMD STEFNU Í HVIRFILVINDI HVERSDAGSINS

FranklinCovey hefur lengi rannsakað þá spurningu af hverju sum fyrirtæki ná að innleiða stefnumarkandi breytingar með framúrskarandi hætti á meðan öðrum mistekst alfarið. Bæði þeir sem skara fram úr og þeir sem lakari eru, geta sýnt fram á mikinn árangur á tilteknum sérsviðum, þar sem hluti starfseminnar skilar ánægðum viðskiptavinum, áhugasömum starfsmönnum og góðum fjárhagslegum árangri. Báðir þessir hópar sýna einnig breytilega frammistöðu yfir tíma.

Lykilmunurinn á framúrskarandi fyrirtækjum og þeim lakari felst í hvernig þau ná að höndla sífellt áreiti og breytingar og er lögun á svokallaðri „breytileikakúrfu“ (variability curve) þeirra því mismunandi. Hæfustu fyrirtækin eru betri í að yfirfæra framúrskarandi árangur sérsviðanna yfir á allt fyrirtækið. Þeirra kúrfa er því samþjöppuð hægra megin á árangursásnum á meðan kúrfa þeirra sem lakari eru, er gisin og dreifð um árangursásinn.

 

Hjá þeim sem sýna slakan árangur í framkvæmd stefnu sýnir sig að sá mikli tími og orka sem fer í að halda daglegri starfsemi gangandi – sjálfum hvirfilvindinum – tekur allan fókus frá lykilmarkmiðum fyrirtækisins. Hvirfilvindur hinna framúrskarandi fyrirtækja er alveg jafn kraftmikill og hjá hinum lakari. Munurinn er sá að framúrskarandi fyrirtækin ná að festa í sessi ferli sem tryggir helgun starfsmanna við að vinna af áfergju að mikilvægustu markmiðunum þrátt fyrir að vera í hringamiðju hvirfilvindsins.

 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
LEIÐTOGAR OG STJÓRNENDUR SEM ERU ÞJÁLFAÐIR Í 4 DISCIPLINES OF EXECUTION ERU GÓÐIR Í AÐ:
  • Skilgreina þær fáu, en mikilvægu aðgerðir sem hafa mest áhrif á það hvort lykilmarkmiðin náist.

  • Virkja teymin sín hnitmiðað til að framkvæma þessar áhrifaríku aðgerðir á framúrskarandi hátt.

  • Tryggja helgun og ábyrgð hjá bæði teymi og einstaklingum

 

4DX AÐFERÐARFRÆÐIN MEÐ ÖFLUGUM FERLUM, TÓLUM OG TÆKJUM HJÁLPAR FYRIRTÆKJUM AÐ:
  • Ná fram auknum stöðugleika í samfelldri framkvæmd aðgerða sem stuðla beint að því að fyrirtækið nái sínum lykilmarkmiðum.

  • Efla til muna góðan starfsanda og helgun starfsmanna á sama tíma og þeir taka á sig aukna ábyrgð.

  • Þróa árangursmenningu innan fyrirtækisins sem verður að sjálfbæru samkeppnisforskoti.

  • Þróa næstu kynslóð árangursdrifinna lykilstjórnenda.

 

 

Innleiðing stefnu
4DX
Kristinn Tryggvi Gunnarsson
Sindri Sigurjónsson
Ragnar Guðgeirsson
4DX
Farsæl framkvæmd stefnu
Styrktu hlutverk stjórnandans við farsæla
innleiðingu stefnu og framkvæmd markmiða.
Áskorun

Stjórnendur eru í lykilhlutverki þegar það kemur að því að ná helstu markmiðum vinnustaða. Engu að síður eru stjórnendur oft óvissir um hver eru lykilmarkmiðin og þeir eru gjarnan með of mörg markmið til að byrja með. Ímyndaðu þér til samanburðar fyrirtæki þar sem stefnan beinist algjörlega að mikilvægustu forgangsverkefnum og því að hjálpa teymum að ná meginmarkmiðum fyrirtækisins.

Lausn

Ólíkt flestri hefðbundinni þjálfun í innleiðingu stefnu snýst vinnustofan 4 Disciplines of Executionekki einungis um virka stefnumörkun heldur einnig um að hjálpa stjórnendum að skapa raunverulegar forsendur til að hrinda stefnunni í framkvæmd. Markmið þessarar vinnulotu er að greina hver eru mikilvægustu markmið hvers stjórnanda og teymis, skapa mælikvarða og greina þær lykilaðgerðir sem hafa áhrif á hvort markmið nást.

Árangur

Árangur er afurð tveggja breytna: skilvirkar stefnu og farsællar framkvæmdar. Grunnstoðirnar fjórar (The 4 Disciplines) gera þér kleift að ná tökum á framkvæmd lykilmarkmiða.  Með því að þjálfa lykilstjórnendur í færni farsællar innleiðinar og kenna þeim að kenna og innleiða þær með teymum sínum tileinka þeir sér ferlið mun betur og árangurinn er framúrskarandi! Með þetta í huga notum við margreynt ferli sem veitir leiðtogum reynslu, styrkingu, hraða sigra og einföld verkfæri til að ná hvaða markmiði sem er.    

Aðrir áhrifamiklir valkostir til árangurs

Einfalt og magnað ferli við innleiðingu stefnu.   Agi, yfirsýn og árangur - allir samstíga í sömu átt.

Umbreytingarferli árangursríkrar menningar.  3ja daga vinnustofa, 360° mat, vönduð námskeiðsgögn, App, markþjálfun (peer and team coaching).

Einsdags vinnustofa fyrir leiðtoga til innleiðingar á árangursríkri menningu með aðferðum markþjálfunar (coaching).  Mjög vönduð kennslugögn, markþjálfun, persónulegar vefsíður, snjallforrit ofl.

Þriggja daga vinnustofa um forystu með einskaklega vönduðum gögnum, LQ (Leadership Quotient) mati, hljóðbók, myndböndum, handbókum stjórnenda, markþjálfun (peer coaching) ofl.

Leiðtogalotur - LEADERSHIP MODULES

6 hálfsdags sjálfstæðar vinnulotur um lykilviðfangsefni leiðtoga - Stefna, Traust, Ferli, Fólk, Fjölbreytileiki, Umbætur.  Vinnubækur, verkfæri og myndbönd auk LQ mats

Eins og hálfsdags vinnustofa til að efla ákvörðunartöku, skerpa skipulag og auka orku.  360° mat, snjallforrit, vönduð kennslugögn, tæknihandbók, ofl

Skapaðu og virkjaðu traust til árangurs.  Frá hugtökum að hagtölum.  Eins dags vinnustofa og umbreytinarferli.  Leystu úr læðingi möguleika með auknu trausti einstakliga, milli teyma, milli hagsmunaaðila og í samfélaginu öllu.

Lærðu að kortleggja tækifæri, greina þarfir og koma á sölusamtali á einstöku 12 vikna ferli.  Námskeiðið Helping Your Clients Succeed þjálfar sölufólk í 1) réttu hugarfari, 2) áhrifaríkum aðferðum og 3) virkum verkfærum við árangur í sölu.

Please reload

Anchor 1
bottom of page