Markþjálfun
Executive Coaching™
Þinn tími. Þitt framlag. Þinn árangur.
Áskorun
Samkvæmt nýlegri könnun vinnur meira en helmingur skrifstofufólks 50 eða fleiri klukkustundir á viku. Þar að auki eru fleiri en 400 milljón viðskiptaferðir farnar á hverju ári, og margir stjórnendur vinna nú meira en þeir gerðu fyrir fimm árum síðan. Nánast allir eru beðnir um að „gera meira með minna“, en þó eru ekki til neinar lausnir sem gera slíkt mögulegt. Ef horft er til efnahags- og markaðsaðstæðna hefur aldrei verið mikilvægara en nú að teymi hrindi mikilvægustu markmiðum sínum í framkvæmd. Stjórnendur verða að halda góðum fókus og skýrri sýn m.t.t. lykilsambanda og upplýsinga um frammistöðu. Hluti þessa er að viðhalda þeirra mikilvægustu eign, þ.e. þeim sjálfum.
Lausn
Hjá FranklinCovey skiljum við að lífið getur verið erilsamt og skipulagslaust. Markþjálfun FranklinCovey gefur yfirstjórnendum þínum kost á samstarfsferli sem miðar að því að þróa tiltekna færni sem hjálpar þeim og fyrirtækinu að ná framúrskarandi árangri. Í grundvallaratriðum hjálpum við þeim að gera meira með minna. Við nýtum úrvals hugmyndafræði um þjálfun sem þróuð var af Columbia University og studd af International Coach Federation (ICF) og sameinum hana víðfrægu efni, hugmyndafræði og verkfærum FranklinCovey til að leiðtogar geti hámarkað möguleika sína.
Yfirlit yfir þjálfunina
Á sama hátt og atvinnuíþróttafólk vinnur með þjálfara til að fínpússa og bæta færni þess, vinna margir leiðtogar með markþjálfara til að veita þeim, teymum þeirra og fyrirtækjum samkeppnisforskot. Leiðtogar sem nýta sér hæfileika og sérþekkingu markþjálfara ná markmiðum sínum hraðar; leysa mörg flókin vandamál betur; verða opnari, gegnsærri og einbeittari gagnvart þeim lykilaðgerðum sem leiða til bættrar frammistöðu; auka hæfni sína til að einbeita sér að mikilvægum markmiðum og þeirri hegðun sem styrkir fyrirtækjamenningu; og verða betri leiðtogar. Eftirfarandi er meðal þess sem markþjálfun með FranklinCovey skilar stjórnendum:
-
Áætlun viðskiptavinar (Client’s Agenda)—Kannaðu málefni, tækifæri og valkosti
til að ná þeim árangri sem þú stefnir að -
Skýrleiki—Settu skýr markmið.
-
Aðgerðaáætlun—Gríptu til einbeittra aðgerða gagnvart því sem mestu máli skiptir.
-
Ábyrgð—Greindu leiðir til að standa við skuldbindingar.
-
Stefnumótun—Gerðu áætlun til að einbeita þér að æskilegum niðurstöðum.
-
Möguleikar—Hámarkaðu persónulega og faglega möguleika þína.
Tímalengd markþjálfunar
Þrír til tólf mánuðir
Innifalið
-
Markþjálfun frá úrvals þjálfurum okkar sem hjálpa þér að halda þér við efnið
og ná árangri. -
Handbók þátttakenda: „Guide to Personal Greatness“. Þessi handbók er full af hugmyndum og æfingum sem hjálpa þér að efla hæfni þína þegar þjálfuninni er lokið. Þessi handbók verður drifkrafturinn á bak við persónulega þróun þína og hjálpar þér að ná varanlegum árangri.
-
Aðgangur að markþjálfunarvefsvæði FranklinCovey (Executive Coaching website).
Nánari upplýsingar
Kynntu þér nánari upplýsingar um markþjálfun í bæklingi hér til hliðar


VIÐ ÞJÓNUM ÞÍNUM ÁRANGRI
Gagnlegar, gagnvirkar og skemmtilegar vinnustofur á vettvangi eða rafrænt. Umbreytingarferli með 360° mati, stöðugri tengingu við vinnu-staðinn, verðlauna-myndböndum, æfingum, snjallforritum og peer coaching ofl ofl.
Hafsjór af þekkingu um gjöfula vefmiðla, áskrift að ágripum af greinum og bókum, snjallforrrit, myndbönd, sjálfsnám, matstæki ofl ofl.
Vottum framúrskarandi innnanhúsleiðbeinendur í tugum hagnýtra lausna FranklinCovey. Ykkar vöxtur á ykkar forsendum með okkar stuðningi.
Snilldar leiðir til að virkja, fræða og efla þitt teymi hvar á landi og hvar í heimi sem er. Þú velur stað og stund - við bjóðum upp á tæknina og þekkinguna.
Veitum þjónustu á sviði markþjálfunar (Executive coaching), jafningja-þjálfunar (Peer coaching), og þjálfun stjórnenda í markþjálfun (Leader implementation).