
Leiðtoginn í Mér
Flottir krakkar. Flottir skólar. Flott frammistaða á öllum sviðum lífsins.
Hvað er Leiðtoginn í mér?
Leiðtoginn í mér er ferli sem byggir á rannsóknum um hvernig megi umbreyta menningu skólasamfélags til að efla félagslega færni nemenda, auka tilfinningagreind, auka færni í mannlegum samskiptum ásamt því að bæta námsárangur og virkja viljann til að taka þátt í leik og starfi. Leiðtoginn í mér er heildrænt umbreytingarlíkan fyrir skóla sem virkar líkt og stýrikerfi tölvu, þ.e. það bætir frammistöðu allra annarra þátta.
Leiðtoginn í mér ferlið er byggt á 7 venjum til árangurs og skilar mikilvægum breytingum svo sem meiri námsárangri, minna einelti, færri agavandamálum og aukinni þátttöku kennara og foreldra. Leiðtoginn í mér hefur einnig haft mælanleg áhrif á starfsgleði, skilvirkari vinnubrögð starfsmanna og við að skapa öruggt og hvetjandi skólaumhverfi þar sem hver og einn fær tækifæri til að njóta sín. Óbeint hafa fjölskyldur, sveitarfélög og vinnustaðurinn fundið jákvæð áhrif.
Það sem meira er: Leiðtoginn í mér veitir nemendum það sjálfstraust og þá færni sem þeir þurfa á að halda til að blómstra í hagkerfi 21. aldarinnar.
Hvaða framtíðarsýn blasir við þínum skóla? Myndi aukið sjálfstæði og ábyrgðartillfinning nemenda hafa áhrif? Myndu ein áhrifamestu verkfæri heims í að efla tilfinningargreind, félagslega færni og persónlega þroska hjálpa þínum kennurum að ná árangri?
Sagan
Sagan hófst árið 1999 þegar gerð var krafa um að skólinn A.B. Combs Elementary, sem átt hafði í erfiðleikum, réðist í gagngerar breytingar eða honum yrði lokað. Þegar skólastjórinn, Muriel Summers, spurði foreldra og viðskiptaleiðtoga hvað þeir vildu að áhersla væri lögð á í skólum heyrði hún eftirfarandi:
Nýjar áherslur
Þessi endurgjöf varpar ljósi á trú flestra, þ.e. að skólarnir okkar ættu ekki einungis að einbeita sér að því að bæta einkunnir, heldur ættu þeir einnig að veita nemendum tækifæri til að hámarka möguleika sína. Á meðan Muriel leitaði að svörum sótti hún námskeið í 7 venjum til árangurs og tók eftir því hversu vel venjurnar náðu yfir þær þarfir sem fólk í samfélagi hennar hafði tjáð. Hún og starfsfólk hennar þróuðu forystuþema og markmiðslýsingu fyrir skólann: Að þróa leiðtoga, eitt barn í einu. Þau kenndu venjurnar 7 ekki sem námsefni heldur með því að samþætta þær við námsskrá, hefðir, kerfi og menningu A.B. Combs.
Á námskeiði í 7 venjum til árangurs sat Muriel Summers, skólastjóri A.B. Combs grunnskólans, meðal viðskiptaleiðtoga og gat ekki annað en velt fyrir sér af hverju venjurnar 7 voru ekki kenndar ungmennum. Árið 2006 varð A.B. Combs fremsti "segulskóli" (Magnet school) Bandaríkjanna. Aðrir skólar hófu þá að líkja eftir forystulíkaninu með svipuðum árangri. Árið 2008 gaf Dr. Stephen R. Covey út bókina The Leader in Me sem fjallar ítarlega um líkanið sem þessir skólar hleyptu af stokkunum og árangur þess fyrir starfsfólk, nemendur, foreldra og samfélagið.
Hvernig er það öðruvísi?
Fjórar ástæður fyrir því að Leiðtoginn í mér líkanið virkar eins vel og raun ber vitni á sama tíma og svo mörg önnur átök skila ekki árangri. Framkvæmdin felur í sér fullkomna samþættingu við þau ferli og verkefni sem eru til staðar í skólum
-
Það felur í sér annað viðmið
-
Það virkar innanfrá og út
-
Það notar sameiginlegt tungutak - Venjurnar 7
-
Framkvæmdin felur í sér fullkomna samþættingu
1) Annað viðmið
Í stað þess að sjá börn út frá normalkúrfu — þar sem sumir krakkar eru klárir og aðrir minna klárir — hjálpar Leiðtoginn í mér kennurum að mæta hverju barni á þann viðmiðið að hvert barn er hæft, hvert barn er leiðtogi. Þetta viðmið breytir öllu. Leiðtoginn í mér kennurum að mæta hverju barni á þann máta að það hafi eitthvað einstakt við sig sem enginn annar hefur. Að sjá þessa hæfileika og hjálpa börnunum að sjá þá líka fléttast inn í allt starf sem viðkemur barninu. Með það að leiðarljósi að hvert barn nái að verða besta útgáfan af sjálfum sér og geta fetað inn í framtíðina með sjálfstraust og færni til að takast á við verkefni lífsins.
2) Innanfrá og út
Skólar sem nota Leiðtoginn í mér líkanið verða fyrst að koma sínum eigin kennurum á sömu blaðsíðu og bæta andrúmsloftið meðal eigin starfsfólks áður en þeir koma líkaninu í framkvæmd meðal nemenda. Þeir geta ekki búist við breytingum hjá nemendum fyrr en þeir hafa breytt sjálfum sér. Eins og hinn mikli sérfræðingur í fræðslumálum Roland S. Barth orðar það, „Eðli sambanda meðal fullorðinna einstaklinga sem vinna í skóla hefur meiri áhrif á gæði hans og eiginleika, og árangur nemenda hans, en nokkur annar þáttur“. Þetta líkan snýst alveg jafn mikið um fullorðna fólkið eins og um börnin. Líkanið virkar innanfrá og út—fyrst kennararnir, síðan nemendurnir og síðan foreldrarnir.
3) Sameiginlegt tungutak—Venjurnar 7
Þegar allir—kennarar, nemendur og foreldrar—byrja að nota sama tungutakið þá fást fram margfeldisáhrif sem eru hreint út sagt ótrúleg. Venjurnar 7 skapa þetta sameiginlega tungutak byggt inn í það starf sem fyrir er. T.d. skiptir það sköpum þegar allir skilja að „kapp er best með forsjá“ eða þýðingu „skilningsríkrar hlustunar“ eða þess að „taka af skarið“. Í skólum sem beita Leiðtoginn í mér líkaninu byrja nemendur oft að nota tungutakið sín á milli og í samskiptum við foreldra sína: „Ég þarf að muna að kapp er best með forsjá og vinna heimavinnuna mína áður en ég fer að leika mér“, „Ég hefði átt að muna eftir mikilvægi þess að vinna saman“ eða „Pabbi, nú ert þú að bregðast við áreitum hugsanalaust“.
4) Framkvæmdin felur í sér fullkomna samþættingu
Leiðtoginn í mér er ekki atburður og ekki námsefni, heldur er það leiðtogaþróun sem felur í sér fullkomna samþættingu—þ.e. alls staðar og alltaf. Í stað þess að „kenna leiðtogahæfni hvern þriðjudag klukkan 13:00“ nota kennarar samþætta nálgun og gera leiðtogaþjálfun hluta af öllu sem þeir gera. Þannig hefur líkanið áhrif á allt—hefðirnar, atburðina, skipulagið, menninguna, aðferðafræði kennslu og námsskrá skólans. En eins og kennararnir segja: „Þetta snýst ekki um að gera enn einn hlutinn, heldur snýst þetta um að gera það sem þú gerir nú þegar með betri hætti“.
Hvernig innleiða skólar Leiðtoginn í mér ferlið?
Í stuttu máli felur Leiðtoginn í Mér ferlið eftirfarndi:
-
Sérfræðingur FranklinCovey á sviði skólamála kynnir sér og greinir núverandi stöðu skólans, rýnir þau verkefni sem verið er að vinna með og tilgreinir með stjórnendum helstu áskoranir sem skólarnir standa frammi fyrir og þeirra framtíðarsýn.
-
Sérfræðingur FranklinCovey þjálfar allt starfsfólk skólans í leiðtogafærni sem inniheldur m.a. 7 venjur til árangurs leiðtogaþjálfunina.
-
Starfsfólk skólans innleiðir síðan Venjurnar 7 og leiðtogahugsunina inn í skólastarfið og fléttar það inn í það starf sem skólinn hefur áður lagt áherslu á, í kennslustundir, í sameiginlega viðburði, skólaumhverfið og þau kerfi sem skólinn notast við.
-
Nemendur flytja áfram leiðtoga hugsunina til heimila og út í samfélagið með stuðningi af skólanum.
-
FranklinCovey menntar og styður aðila frá sveitarfélaginu sem geta þjálfað starfsfólk annarra skóla ásamt því að geta viðhaldið kunnáttu núverandi og verðandi starfsmanna skólanna.
-
Fylgist er með árangri skólanna og reynslu og ávinningi er deilt með samfélagi fagfólks innanlands og erlendis. FranklinCovey hefur þróað virkt og ítarlegt þekkingarsamfélag fyrir kennara, sem þátttakendur hafa greiðan aðgang að.
Leiðtoginn í mér er þriggja ára umbreytingarferli—tímalínan er mismunandi í hverjum skóla.
Hafðu samband við FranklinCovey í síma 775 7077 til að móta þína áætlun og hefja ferlið.
Hver er árangurinn?
Leiðtoginn í mér ferlið er nú verið að innleiða í fleiri en 1000 skólum um allan heim. Skólar greina jafnan frá eftirfarandi árangri:
-
Efling í sjálfstrausti nemenda, hópvinnu, frumkvæði, sköpunargleði, forystuhæfileikum, vandamálalausn, samskiptum, vitund um menningarlegan fjölbreytileika, ásamt námsárangri
-
Bætt skólamenning
-
Mikil minnkun agavandamála
-
Aukið stolt og þátttaka kennara
-
Meiri ánægja og aðkoma foreldra




Aðrir áhrifamiklir valkostir til árangurs
Umbreytingarferli árangursríkrar menningar. 3ja daga vinnustofa, 360° mat, vönduð námskeiðsgögn, App, markþjálfun (peer and team coaching).
Eins dags vinnustofa til aukins árangurs teyma - með 360° mati, íslenskum kennslugögnum, snallforriti ofl.
Tveggja daga vinnustofa til aukins árangurs stjórnenda. 360° mat, vönduð kennslugögn, peer coaching ofl.
Einsdags vinnustofa fyrir leiðtoga til innleiðingar á árangursríkri menningu með aðferðum markþjálfunar (coaching). Mjög vönduð kennslugögn, markþjálfun, persónulegar vefsíður, snjallforrit ofl.
Þriggja daga vinnustofa um forystu með einskaklega vönduðum gögnum, LQ (Leadership Quotient) mati, hljóðbók, myndböndum, handbókum stjórnenda, markþjálfun (peer coaching) ofl.