
5 valkostir til framúrskarandi framleiðni
Þekkingarstarfsfólk og leiðtogar 21. aldarinnar fá greitt fyrir að hugsa, skipuleggja, eiga samskipti og framkvæma með árangursríkum hætti.
Þjakandi truflanir, ótal verkefni sem aldrei taka enda, og vangeta til að eiga góð samskipti geta látið fólki finnast það vera gagnslaust og áhrifalaust og dregið úr árangri.
Lausnir FranklinCovey til aukinnar framleiðni hjálpa þekkingarstarfsfólki og leiðtogum að tileinka sér þrenns konar hæfni sem nauðsynleg er fyrir hámarks árangur:
-
Verja verðmætum tíma, athygli og orku með kerfisbundnum hætti í mikilvægustu forgangsverkefni.
-
Ljúka verkefnum á réttum tíma, innan fjárhagsáætlunar og með fullkomnum árangri.
-
Upplýsa og sannfæra með öflugum hætti eina manneskju eða hundrað, augliti til auglitis eða rafrænt.
Viðhorf, færni og verkfæri framleiðnilausna FranklinCovey gera starfsfólki kleift að ná hámarks árangri hvern dag.
Lausnin er byggð á margra ára rannsóknum og reynslu og eykur afkastagetu til muna og stuðlar að aukinni einbeitingu, sátt og nýjum afrekum.
Þátttakendur læra að beita ferli sem mun efla verulega getu þeirra til að ná mikilvægustu markmiðum á sama tíma og þeir glíma við áreiti í dagsins önn.
5 valkostir til framúrskarandi framleiðni sameina klassískar kenningar um árangursstjórnun og nýjustu rannsóknir á sviði taugavísinda til að hjálpa þér að stjórna betur ákvörðunum þínum, tíma, athygli og orku þannig að þú getir ávallt valið þann kost sem skapar hámarksvirði fyrir þig.


VALKOSTIRNIR FIMM
-
Valkostur 1: Gerðu það sem er mikilvægt, ekki stjórnast af áreitinu
Hvernig greina á það mikilvæga frá því sem er minna mikilvægt eða ekki mikilvægt. Hvernig auka á arðsemi augnabliksins (ROM (Return on the Moment)) á sama tíma og tekist er á við erfiðar truflanir.
-
Valkostur 2: Vertu framúrskarandi, ekki sætta þig við meðalmennsku
Hvernig þú stjórnar þinni ákvarðanatöku gegnum ramma um hvernig velgengni lítur út í þínum mikilvægustu hlutverkum.
-
Valkostur 3: Skipuleggðu stóru steinana, ekki róta í mölinni
Fróðleikur og verkfæri fyrir vikulega og daglega áætlanagerð sem gerir þér kleift að ljúka mikilvægustu forgangsverkefnum með fullkomnum hætti.
-
Valkostur 4: Stjórnaðu tækninni, ekki láta hana stjórna þér
Þarf að segja eitthvað meira? Láttu tæknina virka fyrir þig, ekki gegn þér. Auktu skilvirkni þína með tækninni sem þú notar.
-
Valkostur 5: Kyntu eldinn, ekki brenna út
Einfaldar en áhrifaríkar leiðir til að auka orku þannig að þú getir hugsað skýrt, tekið góðar ákvarðanir og liðið betur í lok hvers dags.





Aðrir áhrifamiklir valkostir til árangurs
Einsdags vinnustofa með raunverkefnum þínum sem veita fólki færni og ferla sem þarf til að stjórna bæði stórum og smáum verkefnum. Náðu settum markmiðum, á réttum tíma og innan fjárhagsáætlunar.
Einfalt og magnað ferli við innleiðingu stefnu. Agi, yfirsýn og árangur - allir samstíga í sömu átt.
Umbreytingarferli árangursríkrar menningar. 3ja daga vinnustofa, 360° mat, vönduð námskeiðsgögn, App, markþjálfun (peer and team coaching).
Einsdags vinnustofa fyrir leiðtoga til innleiðingar á árangursríkri menningu með aðferðum markþjálfunar (coaching). Mjög vönduð kennslugögn, markþjálfun, persónulegar vefsíður, snjallforrit ofl.
Þriggja daga vinnustofa um forystu með einskaklega vönduðum gögnum, LQ (Leadership Quotient) mati, hljóðbók, myndböndum, handbókum stjórnenda, markþjálfun (peer coaching) ofl.
Eins og hálfsdags vinnustofa til að efla ákvörðunartöku, skerpa skipulag og auka orku. 360° mat, snjallforrit, vönduð kennslugögn, tæknihandbók, ofl
Skapaðu og virkjaðu traust til árangurs. Frá hugtökum að hagtölum.
Lærðu að kortleggja tækifæri, greina þarfir og koma á sölusamtali á einstöku 12 vikna ferli. Námskeiðið Helping Your Clients Succeed þjálfar sölufólk í 1) réttu hugarfari, 2) áhrifaríkum aðferðum og 3) virkum verkfærum við árangur í sölu.