top of page
Gerðu þínum stjórnendum kleift
að leiða ykkar teymi til árangurs

Áskorun

Næstum hver sem er getur náð árangri yfir einn til tvo ársfjórðunga með því að vera á stöðugum þönum. Hins vegar er þörf á framúrskarandi stjórnanda til að hámarka möguleika teymisins og ná stöðugum og varanlegum árangri. Nálgun „iðnaðaraldarinnar“ við stjórnun beindist að því að stýra hegðun starfsfólks. Til samanburðar krefst núverandi „öld þekkingarstarfsmannsins“ ólíkrar stefnu, nánar tiltekið stefnu sem hámarkar möguleika teyma og frelsar meðlimi þeirra til að leggja sitt allra besta af mörkum.

 
Lausn

Í vinnustofunni 7 Venjur fyrir stjórnendur er sjónum þátttakenda beint að grunnatriðum þess að leiða þekkingarsamfélag dagsins í dag. Bæði nýjir og reyndir stjórnendur tileinka sér sett verkfæra sem hjálpar þeim að mæta stjórnendaáskorunum dagsins í dag, þ.m.t. lausn ágreinings, forgangsröðun, frammistöðustjórnun, ábyrgð og traust, framkvæmd stefnu, samvinnu og þróun teyma og starfsfólks.

 
Um námskeiðið

Vinnustofan er ítarleg og hagnýt reynsla sem beinist að grundvallaratriðum framúrskarandi stjórnunarhæfileika. Um er að ræða nýja og einstaka nálgun við þróun stjórnenda sem hjálpar teymi þínu að fara frá því að ná góðum árangri til þess að ná framúrskarandi og varanlegum árangri.

 
Tímalengd þjálfunar

Tveggja daga vinnustofa

 
Fyrirkomulag þjálfunar
  • Sæktu vinnustofu fyrir almenning í grennd við þig

  • Fáðu FranklinCovey ráðgjafa til að annast þjálfun í þínu fyrirtæki

  • Fáðu vottun til að kenna þessa vinnustofu

 
Innifalið
  • Valkvætt 360° frammistöðumat fyrir og eftir þjálfun til að mæla árangur við stjórnun.

  • Ríkuleg og umfangsmikil handbók fyrir þátttakendur.

  • „Management Essentials“ hefti sem veitir innsýn inn í hlutverk stjórnenda.

  • Hljóðdiskur þar sem Stephen R. Covey útskýrir hvernig 7 venjurnar eiga við um stjórnendur.

  • Prentaðar og rafrænar útgáfur verkfæranna sem kynnt eru í vinnustofunni.

 

 
 
Endurmenntunareiningar

14 tímar við þjálfun (Contact Hours)

1.4 endurmenntunareiningar (CEU)

Fræðstu nánar um endurmenntunareiningar hér.

 
Markmið

Grunnfærni sem þátttakendur öðlast er m.a. eftirfarandi:

 

7 venjur árangursríkra stjórnenda

Nánar um lausn

Vefsíða - 7 Habits

Spjalla við ráðgjafa

Please reload

Árangursríkir stjórnendur
Námsefni
Framúrskarandi og varanlegur árangur
Guðrún Högnadóttir
Kritinn Tryggvi Gunnarsson
Markmið árangurs

Aðrir áhrifamiklir valkostir til árangurs

Umbreytingarferli árangursríkrar menningar.  3ja daga vinnustofa, 360° mat, vönduð námskeiðsgögn, App, markþjálfun (peer and team coaching).

Eins dags vinnustofa til aukins árangurs teyma - með 360° mati, íslenskum kennslugögnum, snallforriti ofl.

Tveggja daga vinnustofa til aukins árangurs stjórnenda.  360° mat, vönduð kennslugögn, peer coaching ofl.

Einsdags vinnustofa fyrir leiðtoga til innleiðingar á árangursríkri menningu með aðferðum markþjálfunar (coaching).  Mjög vönduð kennslugögn, markþjálfun, persónulegar vefsíður, snjallforrit ofl.

Þriggja daga vinnustofa um forystu með einskaklega vönduðum gögnum, LQ (Leadership Quotient) mati, hljóðbók, myndböndum, handbókum stjórnenda, markþjálfun (peer coaching) ofl.

Leiðtogalotur - LEADERSHIP MODULES

6 hálfsdags sjálfstæðar vinnulotur um lykilviðfangsefni leiðtoga - Stefna, Traust, Ferli, Fólk, Fjölbreytileiki, Umbætur.  Vinnubækur, verkfæri og myndbönd auk LQ mats

Please reload

bottom of page