Teymið
Guðrún Högnadóttir
Framkvæmdastjóri og meðeigandi (Managing Partner) FranklinCovey Nordic Approach
7 Habits, 5 Choices, Great Leaders Great Teams, Great Results, 4 Disciplines of Execution, Trust, Helping Clients Succeed, Executive coaching, Project Management Essentials, xQ, AAP
Guðfinna S. Bjarnadóttir
Ráðgjafi LC (Practice Leader Trust)
Traust
Anna Björk Bjarnadóttir
Ráðgjafi Expectus (Associate Partner)
4 Disciplines of Execution
Þóra Sif Svansdóttir
Þjónustustjóri
(Inside Business Partner)
FranklinCovey | Iceland
Ragnar Þórir Guðgeirsson
Ráðgjafi Expectus (Associate Partner)
4 Disciplines of Execution
María Ellingsen
Ráðgjafi (Associate Partner)
7 Habits, 5 Choices, Presentation Advantage
Aðalheiður Sigursveinsdóttir
Ráðgjafi (Associate Partner)
5 Choices
Kristinn Tryggvi Gunnarsson
Viðskiptastjóri
(AAP Client Partner og 4DX Practice Leader)
4 Disciplines of Execution, 7 Habits, 5 Choices, Helping Clients Succeed, Leading Customer Loyalty, Trust, Executive coaching
Sindri Sigurjónsson
Ráðgjafi Expectus (Associate Partner)
4 Disciplines of Execution, Helping Clients Succeed, Filling the Pipeline, Closing the Sale, Leadership Modules Aligning Processes
Sigrún Þorgeirsdóttir
Ráðgjafi (Associate Partner)
5 Choices og Project Management Essentials
Þú!
Innri þjálfari (Client Facilitator)
Vertu forgöngumaður á þínum vinnustað. Viðvottum innri þjálfara í öllu okkar efni - og bjóðum öflugum vinnustöðum aðgang að öllu okkar efni og matstækjum til eigin sóknar.
NÁNAR UM TEYMIÐ

Guðrún Högnadóttir
Guðrún er framkvæmdastjóri og meðeigandi (Managing Partner) FranklinCovey Nordic Approach Leadership og fyrrverandi framkvæmdastjóri Opna háskólans í HR. Auk stjórnunarstarfa og kennslu við HR hefur hún unnið síðastliðin ár sem leiðbeinandi og markþjálfi (executive coach) í íslensku atvinnulífi og leitt fjölda vinnustofa um árangur liðsheilda og vinnustaða.
Guðrún er heilbrigðisrekstrarhagfræðingur að mennt og lauk MHA gráðu (Master of Healthcare Administration) frá University of North Carolina at Chapel Hill árið 1991 og BSPH gráðu (Bachelor of Science in Public Health) frá sama skóla með áherslu á sjúkrahússtjórnun og mannauðsstjórnun. Guðrún lauk AMP (Advanced Management Program) frá IESE/HR árið 2008.
Guðrún er vottaður ACC markþjálfi hjá ICF (International Coaching Federation) og lýkur PCC vottun á þessu ári. Hún hefur starfað sem markþjálfi (executive coach) frá árinu 2003 með innlendum og erlendum stjórnendum. Guðrún starfaði við stjórnunarráðgjöf frá 1998 til 2003 einkum á sviði stefnumótunar, skipulags- og mannauðsmála og gæðastjórnunar og var meðeigandi Deloitte & Touche Ráðgjafar. Á árunum 1991 til 1997 var Guðrún fræðslustjóri Ríkisspítala og forstöðumaður gæða- og þróunarskorar Landspítalans. Guðrún hefur unnið með fjölda innlendra og erlendra vinnustaða sl. ár sem leiðbeinandi, ráðgjafi og lóðs auk þess að flytja erindi, stýra vinnufundum og kenna á háskólastigi. Sérsvið Guðrúnar eru persónulegur árangur og forysta, stefnumörkun, innleiðing stefnu, árangursstjórnun og markþjálfun. Guðrún situr jafnframt í stjórn nokkurra íslenskra fyrirtækja, fagfélaga og góðgerðarsamtaka.

Þóra Sif er þjónustustjóri / Inside Business Partner IBP FranklinCovey á Íslandi og verkefnastjóri / Executive Assistant fyrir menntasvið FranklinCovey (Leader In Me). Þóra Sif er með burtfararpróf frá FÍH í jazzsöng og rytmískri tónlistarkennslu, hún situr einnig sem gjaldkeri í stjórn Kítón (Konur í tónlist) og formaður í stjórn Hljómlistarfélags Borgarfjarðar ásamt því að kenna söng við Tónlistarskóla Borgarfjarðar.
Þóra Sif Svansdóttir
Kristinn Tryggvi Gunnarsson er viðskiptafræðingur að mennt og lauk B.S. prófi í stjórnun frá University of North Carolina og MBA prófi frá University of Georgia. Kristinn hefur víðtæka stjórnunarreynslu, starfaði í sjö ár hjá Íslandsbanka, lengst af sem útibússtjóri og fjögur ár hjá SPRON sem framkvæmdastjóri fyrirtækjasviðs og síðar markaðsmála. Á tímabilinu 2002-2008 starfaði Kristinn hjá Capacent, fyrst sem ráðgjafi, síðar framkvæmdastjóri ráðgjafarsviðs og síðustu tvö árin sem forstjóri Capacent á Íslandi. Árið 2009 var Kristinn einn að stofnendum Expectus og starfaði þar við ráðgjöf og stjórnun þar til hann gekk til liðs við FranklinCovey í apríl. Kristinn hefur starfað með fjölmörgum af stærstu fyrirtækjum landsins á sviði stefnumótunar, markaðs- og þjónustumála. Hann kennir við Opna háskólann í HR og starfaði sem stundakennari við viðskiptadeild Háskólans í Reykjavík um níu ára skeið, þar sem hann kenndi þjónustustjórnun, leiðtogafræði og breytingarstjórnun. Hann hefur mikla reynslu af lóðsun og stjórnendaþjálfun og hefur auk réttinda frá FranklinCovey lokið þjálfun hjá Project Adventure, Corporate Lifecycles, Lego Serious Play, Blue Ocean Strategy, Corporat Coach U og SHL.
Kristinn Tryggvi Gunnarsson

Anna Björk er framkvæmdastjóri og stjórnunarráðgjafi hjá Expectus og framkvæmdastjóri Expectus Software. Anna Björk hefur áralanga reynslu sem leiðtogi og stjórnandi, starfði sem framkvæmdastjóri þjónustusviðs TDC AS í Noregi, sem framkvæmdastjóri einstaklingssviðs og síðar tæknisviðs hjá Símanum. Hún hefur stjórnað breiðri flóru verkefna og sviða hjá Símanum og þar áður TDC AS, eða allt frá þjónustumálum, sölu- og markaðsmálum, vöru- og viðskiptaþróun, yfir í alla tækniflóruna sem finna má á fjarskiptamarkaði.
Anna Björk hefur verið drifkraftur í stefnumótun og þróunarferli þessara fyrirtækja og í fararbroddi hjá Símanum í innleiðingu á samfélagslega ábyrgri starfsemi, sem og hjá Festu, miðstöð um samfélagsábyrgð fyrirtækja, þar sem hún var stjórnarformaður og leiddi stofnun og uppbyggingu þess félags. Þá starfaði hún sem ráðgjafi hjá Capacent 2007 – 2008, þar sem hún stýrði og tók þátt í fjölbreyttum verkefnum í stefnumótun og rekstri fyrirtækja og stofnana. Hjá Expectus hefur Anna Björk starfað með breiðri flóru íslenskra og alþjóðlegra fyrirtækja á sviði stefnumótunar og stjórnunar. Anna Björk er vottaður 4DX þjálfari frá FranklinCovey.
Anna Björk Bjarnadóttir
Ragnar er ráðgjafi og stjórnarformaður Expectus. Hann hefur stýrt verkefnum fyrir mörg af stærstu fyrirtækjum landsins á sviði stefnumótunar, skipulagsvinnu, fjármála og breytingarstjórnunar. Hann hefur mikla reynslu á sviði endurbóta á ferlum, þróunar stjórnunarupplýsinga og notkunar upplýsingatækni til hagræðingar í rekstri. Reynsla Ragnars á sviði stjórnunar og fjármálaþekking hans sem endurskoðanda hafa skapað honum sérstöðu sem nýtist vel í innleiðingu stefnu og árangursstjórnun.
Hann er með löggildingu í endurskoðun 1992 og er Cand Oecon í viðskiptafræði 1989 frá Háskóla Íslands.
Ragnar Þórir Guðgeirsson

Sindri er stjórnunarráðgjafi hjá Expectus. Hann hefur starfað með mörgum af stærstu fyrirtækjum landsins á hinum ýmsu sviðum, m.a. við stefnumótun, fjármála og árangurstjórnun, áætlanagerðir og við endurhönnun viðskiptaferla. Hann hefur mikla reynslu í að aðstoða fyrirtæki við að straumlínulaga ferla og bæta rekstur þeirra með því að nýta þau gögn sem til staðar eru í viðskiptakerfum fyrirtækja og breyta þeim í lykiltölur fyrir stjórnendur. Sindri er með MSc í aðgerðarrannsóknum og Bsc í iðnaðarverkfræði. Hann var áður forstöðumaður viðskiptaþróunar hjá Skeljungi og stýrði þar innleiðingu stefnumótunar, úrbótavinnu og uppsetningu stefnumarkandi mælinga hjá félaginu. Áður leiddi hann m.a. framleiðsluþróun hjá Actavis hf. og var í framkvæmdastjórn félagsins.
Sindri Sigurjónsson

María er með BA gráðu í leiklist frá New York háskólanum og starfar sem leikari, leikstjóri og höfundur. María er vottaður þjálfari frá FranklinCovey í 7 Habits og Five Choices og er að ljúka þjálfun í Presentation Advantage frá FranklinCovey. Hún er með margra ára reynslu sem stjórnendaþjálfari og fyrirlesari og hefur kennt á fjölda námskeiða í Opna háskólanum í HR, í akademískum deildum skólans og hjá Capacent. María hefur unnið með námsefni FranklinCovey síðan 2007.
María Ellingsen

Sigrún starfar sjálfstætt sem verkefnastjóri og hefur haldið utan um fjölda ólíkra verkefna á undanförum árum. Meðal verkefna má nefna; verkefnastjóri TEDxReykjavík (2013), kosningastjóri Þóru Arnórsdóttur (2012) og verkefnastjóri fyrsta Þjóðfundarins í Laugardalshöll (2009) sem og Þjóðfundar um stjórnarskrá Íslands (2010). Sigrún hefur tekið að sér framleiðslu og fjármögnun nokkurra leiksýninga og var verkefna- og fararstjóri þegar farið var með hóp sérfræðinga til Palestínu og Botswana (2009) til að setja upp gervifætur. Á vorönn 2011 hóf hún að kenna eigið námskeið um þjónustu í Opna háskólanum.
Sigrún lærði hótelstjórnun í Les Roches í Sviss (1994) og viðskiptafræði við Anglia Ruskin University í Cambridge á Englandi (2003). Að auki er hún með alþjóðlega vottun (IPMA) í verkefnastjórnun frá Endurmenntun HÍ (2010). Áður en Sigrún hóf að starfa sjálfstætt var hún markaðs- og þjónustustjóri Einkabankaþjónustu Kaupþings banka í Lúxemborg og á Íslandi frá 2004. Frá árinu 2006 vann hún sem viðburðastjóri og síðar sem forstöðumaður viðburða- og ferðadeildar Kaupþings.
Sigrún Þorgeirsdóttir

Aðalheiður er stjórnunarráðgjafi og markþjálfi og starfar sem mannauðsstjóri hjá Þjóðskrá Íslands.. Hún hefur starfað með mörgum af fyrirtækjum við stefnumótun og ráðgjöf. Hún hefur sérhæft sig á sviði straumlínustjórnunar unnið við innleiðingu aðferðarinnar hjá fyrirtækjum og stofnunum.
Hún hefur mikla reynslu í að aðstoða fyrirtæki við að straumlínulaga ferla og bæta rekstur þeirra og styðja stjórnendur og starfsmenn í breytingum. Aðalheiður er með MBA og BA í heimspeki auk þess að vera markþjálfi og einkaþjálfari.
Aðalheiður hefur kennt við Opna háskóla HR og haldið fjölmarga fyrirlestra um straumlínustjórnun og markþjálfun.
Fyrri reynsla Aðalheiðar er viðtæk en hún meðal annars unnið sem stjórnandi og verkefnastjóri hjá Arion banka, Tækniskólanum, World Class og starfað sem aðstoðarmaður ráðherra.
Aðalheiður Sigursveinsdóttir
Guðfinna er meðeigandi og stjórnandi í LC Ráðgjöf. Hún útskrifaðist frá West Virginia University í Bandaríkjunum árið 1991 með doktorsgráðu í atferlisfræði með áherslu á stjórnun (performance management).
Áður hafði hún lokið MA gráðu frá sama háskóla og BA gráðu í sálfræði við Háskóla Íslands. Guðfinna stofnaði árið 1991 ráðgjafafyrirtækið LEAD Consulting í Bandaríkjunum ásamt eiginmanni sínum, og ráku þau fyrirtækið í nær áratug.
Guðfinna var fyrsti rektor Háskólans í Reykjavík (1998-2007). Hún var alþingismaður árið 2007-2009. Sem ráðgjafi hefur hún þjónað fjölmörgum fyrirtækjum og stofnunum víða um heim.