top of page
7 venjur fyrir káta krakka
7 venjur fyrir káta krakka 

 

Einstök bók fyrir öfluga krakka, flotta foreldra og fyrirmyndar afa og ömmur!

 

Sjö fallega myndskreyttar sögur varpa ljósi á hvernig Venjurnar 7 geta þjónað okkur á lífsins leið. Með skemmtilegum persónum og sniðugum sögum kennir þessi alþjóðlega metsölubók börnum tímalaus gildi sem margir fullorðnir þekkja úr bókinni 7 venjur til árangurs.  Börnin komast að því hvernig þau geta tekið við stjórninni í lífi sínu, forgangsraðað með stæl og af hverju jafnvægi er mikilvægt.  Þau vinna með gildi eins og ábyrgð, framsýni, virðingu, samvinnu, sköpunargleði og jafnvægi – allt á sínum forsendum. Þessi lífsspeki hefur sannað sig hjá fullorðnum og fyrirtækjum um áranna rás og nú er gefst börnum, foreldrum og kennurum tækifæri til að vinna með þetta áhrifaríka efni á íslensku. 

Hver kafli endar á Foreldrahorni þar sem foreldrar fá ráð um góð samtöl og sniðugar æfingar um hverja venju.   Á sérstakri vefsíðu bókarinnar má nálgast teiknimyndasögur, æfingar og ítarefni fyrir börn og foreldra.

Nánari upplýsingar hér til hliðar.

The Leader in Me
bottom of page