top of page
7 Venjur til árangurs
Tímalaus metsölubók
Útsölustaðir:
heimkaup
FRÍ HEIMSENDING
Penninn Eymundsson
Bóksala stúdenta
Iða
Forlagið bókabúð
Framköllunarþjónustan

„Ég las þessa bók á fyrstu árunum í atvinnumennskunni í handbolta og hef verið allan minn feril að reyna að temja mér innihald hennar.“

Ólafur Stefánsson, handboltamaður

„Það eru stórar lexíur í þessari bók.  Öflug verkfæri sem geta flutt fjöll úr stað.  Í mínu tilfelli kenndi þessi bók mér að spyrja: Hvað er mér raunverulega mikilvægt? Og hvað er bara áríðandi?"

Benedikt Erlingsson, leikstjóri og kvikmyndaframleiðandi

 

„Covey kom auga á þær forsendur frammistöðu sem hafa varðað vöxt okkar – jákvæðni, áreiðanleika, hagkvæmni og framsækni.  Vinnustofa stjórnenda í 7 venjum ræktaði enn frekar jarðveg árangurs hjá Ölgerðinni.“

Andri Þór Guðmundsson, forstjóri Ölgerðarinnar

,,Það er einfaldara og betra fyrir fólk í lífinu að nota venjurnar 7. Uppáhaldsvenjan mín er ,,ræktaðu sjálfan þig" af því að hún snýst um að manni þurfi að líða vel í líkamanum og hjartanu til að hafa það gott og ganga vel í lífinu". 

Ernir Daði Arnberg Sigurðsson, 9 ára nemandi í Borgarbyggð

 

 

„Tímalaus sýn Coveys á árangur einstaklinga í einkalífi og á vinnustað á svo sannarlega við í dag.  Bók hans varpar ljósi á klassíska nálgun til að bæta verulega árangur í lífi og starfi, og hann kryddar framsetninguna með skemmtilegum dæmisögum, áhrifaríkum og hagnýtum aðferðum.“

Gylfi Sigfússon, forstjóri Eimskipafélags Íslands

 

„Sýn Coveys á árangursríkar aðferðir fyrir einstaklinga og liðsheildir er í senn áhugaverð og uppbyggjandi.  Bókin fjallar um hagnýtar leiðir til að vaxa og dafna í nútíma þekkingarsamfélagi. Lesning sem nýtist öllum til aukins árangurs í lífi og starfi.“

Dr. Svafa Grönfeldt, framkvæmdastjóri Alvogen

„Lestur bókarinnar og þjálfun starfsmanna okkar er verulega til gagns.  Í raun snýst þetta um heilbrigða skynsemi og öguð vinnubrögð, forgangsröðun og skipulag.  Og þar sem „common sense is not so common“ veitir þetta mjög gagnlegt aðhald og áminningu um hvernig best er að haga verkum.  Það er í raun ekki hægt að gleyma leiðbeiningunum, bara að rifja upp að til eru 7 venjur og þá fylgir allt hitt með.“

Ásgeir Margeirsson, forstjóri HS Orku

 

„Ein af þeim bókum sem hittir í mark og  nær um leið  tengingu við lesandann með sýnilegum og áþreifanlegum hætti.  Venjurnar sjö hafa haft með mjög árangursríkum hætti áhrif á mig sem einstakling sem og leiðtogahæfni mína. Bókin er leiðarvísir í þá átt að laða fram það allra besta í hverjum einstaklingi sem er mikil verðmæti fyrir samfélagið jafnt sem skipulagsheildina.“

Sigurður B. Pálsson, forstjóri BYKO

 

„7 venjur til árangurs er frábær bók sem hjálpar okkur ekki bara að ná persónulegum árangri heldur hjálpar hún okkur til að hafa jákvæð áhrif á alla í kringum okkur. 7 venjur til árangurs inniheldur afar verðmæta leiðsögn um hvernig við getum veitt betri forystu í lífi okkar. Þessi einstaka bók sáir fræjum sem hætta aldrei að vaxa!“

Sigurður Ragnarsson, forseti viðskiptadeildar Háskólans á Bifröst

 

„Að öðrum ólöstuðum er Covey  framúrskarandi þegar kemur að skrifum um raunverulegan og langvarandi árangur í lífi og starfi.  Tímalaus viska hans og lífsreglur eru lykill að farsælu ferðalagi, hversu farsælt ferðalagið verður er þó undir lesandanum einum komið.  Þá reynir fyrst og síðast á einbeitan vilja til að axla ábyrgð á eigin velferð og samferðamanna.“  

Arnar Hreinsson, útibússtjóri Landsbankanum

 

 

„Bókin um venjurnar 7 er ein mest selda viðskiptabók allra tíma og ein áhrifamesta bók sem notuð hefur verið í leiðtogaþjálfun um allan heim.  Hún fjallar um miklu meira en bara viðskipti og þjálfun leiðtoga.  Hún fjallar um bestun í persónulegri hegðun til að hámarka árangur í hverju því sem menn takast á hendur, hvort heldur er í vinnu eða einkalífi.  Það geta allir látið sig dreyma en bókin hjálpar fólki til að gera drauma að veruleika með því að setja sér metnaðarfull markmið og ná þeim með skipulögðum hætti.  Þessi bók ætti að vera skyldulesning í öllum framhaldsskólum á Íslandi.“

Hreggviður Jónsson, aðaleigandi og stjórnarformaður Veritas Capital,
stjórnarformaður Festi

 

„Í gegnum lífið áttu nokkur „AHA-augnablik“ en 7 Venjur til árangurs er eitt stærsta „AHA-augnablik“ sem ég hef átt.  Persónulegur vöxtur og skilningur minn á sjálfum mér hefur gefið mér ótrúlegt sjálfstraust og styrk.  Ég get ekki beðið eftir að færa samstarfsmönnum mínum hjá Securitas þessa gjöf sem Venjurnar 7 eru.“

Hlíf Böðvarsdóttir, fræðslustjóri Securitas

 

„Rétt eins og Newton færði okkur aukinn skilning á þyngdarlögmálinu þá hefur Covey fært  okkur skilning á þeim lögmálum sem liggja að baki velgengni í lífi og starfi.  Flóknara er það ekki.“

Kristinn T. Gunnarsson, ráðgjafi

 

“Bókin 7 venjur til árangurs er ein af þeim bókum sem að liggja reglulega á náttborðinu mínu. Sígildur og áhrifamikill boðskapur bókarinnar hefur hjálpað mér að ná árangri í starfi og ekki síður verið mér mikil hvatning í persónulegu lífi.”

Elísabet Einarsdóttir, Starfsmannastjóri Íslandshótela

 

„Ég setti mér ný markmið eftir lestur bókarinnar. Það er gott að hafa markmið en það sem er enn mikilvægara er að vita hvernig maður ætlar að komast þangað og þá sýn fékk ég eftir mjög gott námskeið í 7 venjum til árangurs. Takk fyrir mig!“

Gunnur Helgadóttir, framkvæmdastjóri Vistor

 

"Einföld og hagnýt yfirferð á lykilatriðum til árangurs. Ég hef stuðst við efni bókarinnar í lífi og starfi frá fyrsta degi eftir að hafa lesið hana, gríp oft til hennar fyrir innblástur og mæli með henni í hvívetna við hvern þann sem vill hafa áhrif og skara framúr."

Salóme Guðmundsdóttir, framkvæmdastjóri Icelandic Startups

„Ég mæli eindregið með 7 venjum til árangurs, bókin er í senn bæði fræðileg og hagnýt. Hún mun án efa nýtast þeim sem vilja bæta og efla eigin þekkingu hvort sem um er að ræða í leik eða starfi.“

Guðrún Karlsdóttir, framkvæmdastjóri fjármálasviðs Marorku ehf.

 

 

 

„Nálgun Coveys um grunnþætti árangurs í lífi og starfi er í senn tímalaus og mjög svo tímanleg.  Vinnustofa 7 venja til árangurs færði stjórnendateymi Kópavogsbæjar ný viðhorf, færni og aðferðir til að efla okkur enn frekar í að þjóna spennandi verkefnum sveitafélagsins.“

Ármann Kr. Ólafsson, bæjarstjóri Kópavogs

 

 

„7 habits er að mínu mati frábær aðferðafræði fyrir þá sem vilja ná árangri. Ég mæli hiklaust með henni.“

Ragnhildur Geirsdóttir, framkvæmdastjóri Landsbankanum

„Þetta er metsölubók um venjur þeirra sem hafa náð árangri. Boðskapur hennar á brýnt erindi við alla stjórnendur. Það kemst vel til skila hversu mikilvægt er að forgangsraða og sjá árangur og lausnir fyrir sér. Í upphafi skyldi endinn skoða. Skýr framtíðarsýn hvetur stjórnendur til dáða og er þeim mikill orkugjafi.“

Jón G. Hauksson, ritstjóri

 

„Venjurnar 7 eru einfaldar en áhrifaríkar. Þær hjálpa til við skjóta ákvörðunartöku og forgangsröðun á þeim verkefnum sem upp koma á hverjum degi. Frábær bók sem fær mann til að staldra við og brýna sig að nýju.“

Jón Trausti Ólafsson, forstjóri Öskju

"Ég var svo heppin að rekast á þessa bók ung að árum og hún kenndi mér hvernig ég gæti gert drauma mína varðandi bæði líf og starf að veruleika og notað tímann vel."

María Ellingsen, leikkona

 

 

„Sjö venjur til árangurs hafa reynst mér einstaklega vel í viðleitni minni til að ná auknum þroska, dýpri lífsánægju og meiri hæfni og einbeitingu í starfi. Venjurnar eru mér dagleg áskorun,  haldgott verkfæri og áminning um þau góðu gildi sem ég vil að veiti mér leiðsögn í lífinu.“ 

Auður Edda Jökulsdóttir, staðgengill sendiherra, sendiráði Íslands í Berlín

bottom of page