
7 venjur til árangurs grunnur - FOUNDATIONS
Eins dags námskeið fyrir almennt starfsfólk
Öflugt fólk. Öflug ferli. Öflug frammistaða.
Áskorun
Á öllum sviðum vinnustaðarins skiptir árangur einstaklinga máli. Hvort sem um er að ræða yfirstjórnendur, meðlimi teyma eða millistjórnendur magnar léleg frammistaða falinn kostnað slakra afkasta, glataðra tækifæra og mikillar starfsmannaveltu. Einstaklingar eru afkastameiri og nota hæfileika sína betur þegar þeir deila sameiginlegri sýn sem byggir á hlutverki og markmiðum vinnustaðarins.
Lausn
Vinnustofan 7 venjur til árangurs fyrir almennt starfsfólk hjálpar starfsfólki að nýta hæfileika sína til hins ítrasta. Með nýrri þekkingu, hæfileikum og verkfærum verður það hæfara til að taka á málum, vinna sem teymi, auka ábyrgð og setja markið hærra.
Markmið
Markmið vinnustofunnar eru eftirfarandi:
-
Persónuleg forysta og starfsþróun – kynntar eru aðferðir til að efla frumkvæði, skipuleggja sig, vinna að markmiðum og stefnu og virkja liðsheildina til árangurs.
-
Leiðtogaþróun — 7 venjur til árangurs efla hæfileika verðandi og vaxandi leiðtoga með því að skerpa framtíðarsýn, forgangsraða verkefnum, skilja betur eigin hlutverk og ná fram samlegðaráhrifum hópsins.
-
Efla hæfni í að takast á við breytingar — Það hefur sýnt sig að nálgun Covey á mjög vel við þar sem tekist er á við erfiðar eða umfangsmiklar breytingar og þar sem byggja á á traustum grunni gilda og framtíðarsýnar.
-
Liðsheild – sérstaklega er unnið með hæfileika stjórnenda til að leiða aðra til árangurs. Meðal annars að innleiða „win-win“ hugarfar í samskiptum / samningum / viðskiptum, kenna leiðir til skilningsríkar hlustunar og endurgjafar og að virða ólík sjónarhorn og nýta viðtalstækni til árangurs.
Um námskeiðið
Í eins dags vinnustofunni 7 venjur til árangurs fyrir almennt starfsfólk læra einstaklingar meginreglur sem gera þeim kleift að hámarka möguleika sína. Þátttakendur uppgötva hvernig þeir geta stóreflt frammistöðu sína og náð faglegum markmiðum sínum með því að forðast bæði það að vera háðir og óháðir, og færast yfir í að vera háðir innbyrðis en þar liggur raunveruleg velgengni. Þetta gerir þeim kleift að upplifa frá fyrstu hendi þá umbun sem fylgir framúrskarandi samvinnu.
Tímalengd þjálfunar
Eins dags staðbundin vinnustofa.
Fyrirkomulag þjálfunar
-
Sæktu vinnustofu fyrir almenning í grennd við þig
-
Fáðu FranklinCovey ráðgjafa til að annast þjálfun í þínu fyrirtæki
-
Fáðu vottun til að kenna þessa vinnustofu
Efnistök
Í ferlinu munu þátttakendur öðlast færni í að vinna að auknum árangri í lífi og starfi meðal annars með því að vinna að eftirfarandi:
Innifalið
-
Íslensk handbók þátttakenda
72 síðna handbók á íslensku er full af dæmum og æfingum sem hjálpa þátttakendum að efla hæfni sína á vinnustofunni og í kjölfar hennar. -
Rafrænt sjálfsmat (The 7 Habits Self Assessment)
Þetta sjálfsmat hjálpar þér að mæla árangur þinn frá eigin sjónarhóli með hliðsjón af venjunum 7. -
7 venjurnar á hljóðdiski (The 7 Habits Resource Audio CD)
Dr. Covey les metsölubók sína um venjurnar 7 á hljóðdiski.
-
7 daga innleiðing (7-day Job Aid )
„7-day Job Aid“ hjálpar þér að tileinka þér 7 venjurnar með því að einbeita þér að einni þeirra á hverjum degi.
Endurmenntunareiningar
-
6 tímar við þjálfun (Contact Hours)
-
6 endurmenntunareiningar (CEU)
-
7 starfsmenntunareiningar (CPE)
-
Fræðstu nánar um endurmenntunareiningar hér.



Aðrir áhrifamiklir valkostir til árangurs
Umbreytingarferli árangursríkrar menningar. 3ja daga vinnustofa, 360° mat, vönduð námskeiðsgögn, App, markþjálfun (peer and team coaching).
Eins dags vinnustofa til aukins árangurs teyma - með 360° mati, íslenskum kennslugögnum, snallforriti ofl.
Tveggja daga vinnustofa til aukins árangurs stjórnenda. 360° mat, vönduð kennslugögn, peer coaching ofl.
Einsdags vinnustofa fyrir leiðtoga til innleiðingar á árangursríkri menningu með aðferðum markþjálfunar (coaching). Mjög vönduð kennslugögn, markþjálfun, persónulegar vefsíður, snjallforrit ofl.
Þriggja daga vinnustofa um forystu með einskaklega vönduðum gögnum, LQ (Leadership Quotient) mati, hljóðbók, myndböndum, handbókum stjórnenda, markþjálfun (peer coaching) ofl.