Endurmenntunareiningar (CEU)
Endurmenntunareiningar (Continous Education Units) á námskeiðum FrankinCovey
Hér finnur þú upplýsingar um þær vinnustofur FranklinCovey sem eru viðurkenndar til að gefa endurmenntunareiningar (Continuous Education Units). Á vefsvæðinu má einnig finna upplýsingar um tækifæri til endurmenntunar flokkuð eftir atvinnugreinum. Fyrir neðan eru svör við nokkrum algengum spurningum um þau tækifæri sem við bjóðum upp á til endurmenntunar. Nánari upplýsingar eru einnig fáanlegar í töflu FranklinCovey yfir viðurkenndar vinnustofur hér: FranklinCovey Accredited Workshops & Hours chart.
Hvað er endurmenntunareining (Continuing Education Unit [CEU])?
Endurmenntunareining er stöðluð mælieining sem notuð er til að mæla magn endurmenntunar og ávinning þjálfunar og sem gagnast ýmsum aðilum, aðgerðum og tilgangi á sviði endurmenntunar.
Hvaða vinnustofur gefa endurmenntunareiningar?
Allar vinnustofur FranklinCovey fyrir almenning gefa endurmenntunareiningar í samræmi við þann fjölda tíma við þjálfun sem um er að ræða. Fjölda veittra endurmenntunareininga má sjá í töflu FranklinCovey yfir viðurkenndar vinnustofur. Endurmenntunareiningar kunna að vera fáanlegar fyrir sérsniðnar vinnustofur fyrir þinn vinnustað. Áætlaðar stundir sérsniðinna vinnustofa má einnig finna í töflunni yfir viðurkenndar vinnustofur, en þar sem að þessar vinnustofur kunna að vera mismunandi m.t.t. tímalengdar og efnis eru einingar veittar á grundvelli hvers tilviks fyrir sig.
Hvernig get ég fengið endurmenntunareiningar?
Þátttakendur sem hafa áhuga á að fá endurmenntunareiningar fyrir nám sitt í vinnustofunni verða að skrá sig inn og út með notkun nemendalista (Continuing and Professional Education Roster) til að staðfesta að þeir voru viðstaddir. Þessi listi er síðan sendur aftur til FranklinCovey fyrir frágang skírteina. Endurmenntunarskírteini eru gefin út 4-6 vikum eftir vinnustofuna.



Fyrir hvaða gerðir fagmenntunar er FranklinCovey viðurkennt til að veita einingar, og á vegum hvaða ráða/samtaka færð þú viðurkenningu?
FranklinCovey er viðurkennt til að veita einingar fyrir fjölda atvinnugreina og ráða/samtaka, þ.m.t. löggilta endurskoðendur, hjúkrunarfólk og samtökin International Association for Continuing Education and Training (IACET). Fyrir neðan eru merki ráða/samtaka og upplýsingar um hvaða atvinnugreinar geta fengið viðurkenndar einingar gegnum vinnustofur FranklinCovey.
FranklinCovey Co. hefur verið samþykkt sem viðurkenndur menntunaraðili (Authorized Provider) af samtökunum International Association for Continuing Education and Training (IACET), 1760 Old Meadow Road, Suite 500, McLean, VA 22102; (703) 506-3275. Með þessari viðurkenningu hefur FranklinCovey Co. sýnt að það hlítir ANSI/IACET 1-2007 staðlinum sem er alþjóðlega viðurkenndur staðall fyrir góðar starfsvenjur. Vegna þess að FranklinCovey hefur stöðu viðurkennds menntunaraðila (Authorized Provider membership status) er fyrirtækinu heimilt að veita IACET endurmenntunareiningar fyrir þau námskeið sín sem uppfylla skilyrði ANSI/IACET 1-2007 staðalsins.
Einingar sem eru samþykktar gegnum þessa viðurkenningu:
Endurmenntunareiningar (CEU credits)
FranklinCovey Co. er skráð hjá samtökunum National Association of State Boards of Accountancy (NASBA) sem stuðningsaðili endurmenntunar í skránni National Registry of CPE Sponsors. Eftirlitsráð ríkja um endurskoðun (state boards of accountancy) hafa úrslitavald varðandi samþykkt einstakra námskeiða til starfsmenntunareininga (CPE credit). Kvartanir varðandi skráða stuðningsaðila er hægt að senda til National Registry of CPE Sponsors, 150 Fourth Avenue North, Nashville, TN, 37219-2417. Vefsvæði: www.nasba.org.
Nám sem er samþykkt gegnum þessa viðurkenningu:
Löggiltir endurskoðendur (Certified Public Accountants)
FranklinCovey Co. hefur fengið viðurkenningu sem veitandi endurmenntunar í hjúkrun af samtökunum Utah Nurses Association sem eru viðurkennd sem samþykkjandi (approver) endurmenntunar í hjúkrun af American Nurses Credentialing Center's Commission on Accreditation.
Nám sem er samþykkt gegnum þessa viðurkenningu:
Hjúkrun (ekki í Kaliforníu)
Hafðu samband
Guðrún Högnadóttir, framkvæmdastjóri
+354 775 7070
Þóra Sif Svansdóttir, þjónustustjóri
+354 775 7077