Helping Clients Succeed -
vinnustofa, sjálfsnám og markþjálfun
Ný, áhrifarík nálgun við þjálfun sölufærni
Lærðu að kortleggja tækifæri, greina þarfir og koma á sölusamtali á einstöku 12 vikna ferli. Árangursrík sala þjónar langtímaárangri viðskiptavina - þar fara sameiginlegir hagsmunir saman. Vinnustofan Helping Your Clients Succeed þjálfar sölufólk í 1) réttu hugarfari, 2) áhrifaríkum aðferðum og 3) virkum verkfærum við árangur í sölu.
Fyrir hverja?
Vinnustofan er ætluð sölustjórum og sölufólki sem stundar ráðgefandi sölu til fyrirtækja.
5% munurinn
Í meira en áratug hafa sérfræðingar FranklinCovey unnið með fleiri en 35.000 sölusérfræðingum og rannsakað árangursríka söluhegðun. Helping Clients Succeed - Filling Your Pipeline er afurð þeirra rannsókna. Ljóst er að fremstu sölumenn heims nálgast sölu með öðru hugarfari, færni, skipulagi og allt öðrum árangri en aðrir. Tileinkaðu þér nálgun 5% fremstu sölusérfræðinga heims og uppskerðu framúrskarandi árangur.
Ferlið
Sölulotur FranklinCovey: Helping Clients Succeed byggja á eftirfarandi nálgun.
-
Eins dags vinnustofa - kynntar eru til leiks ný viðhorf og aðferðir við árangursríka sölu. Vinnustofan grundvallast á raun verkefnum hvers þátttakanda og byggir á áhrifaríkum stuttum fyrirlestrum, myndböndum og æfingum.
-
12 vikna fjarnám - Hver þátttakandi fær í hendur 12 vikna prógramm með fyrirlestrum, verkefnum og sjálfsmati og vinnur kerfisbundið með samnemanda að auknum árangri í sölu.
-
Markþjálfun - staðan er tekin með leiðbeinenda tvisvar sinnum á þriggja mánaða ferlinu, árangur metinn og næstu skref kortlögð.
Námskeiðsgögn
Helping Clients Succeed söluloturnar styðjast við afar vönduð námsgögn, sem þátttakendur fá afhent á vinnustofunni. Þeirra á meðal er vinnubók með gögnum og æfingum námskeiðsins, 12 vikna áætlun með verkefnum ("12-Week Execution Playbook"), USB kubbur með vinnuskjölum og sjálfsnámi (myndbönd), spilastokkur með upprifjun, æfingum o.fl.
Sannreyndur árangur
Fjöldi alþjóðlegra fyrirtækja hefur náð umtalsverðum árangri í sölu með nálgun FranklinCovey. Sölulausnir FranklinCovey (Franklin Covey Sales Performance Group) hefur verið valið eitt af 20 fremstu söluþjálfunarfyrirtækjum síðastliðinn áratug (Top 20 Sales Training Companies) af Training Industry, Inc.
Nánari upplýsingar um fyrirtækin og dæmisögur um árangur er að finna hér.
Sölustjórnun





Einfalt og magnað ferli við innleiðingu stefnu. Agi, yfirsýn og árangur - allir samstíga í sömu átt.
Umbreytingarferli árangursríkrar menningar. 3ja daga vinnustofa, 360° mat, vönduð námskeiðsgögn, App, markþjálfun (peer and team coaching).
Einsdags vinnustofa fyrir leiðtoga til innleiðingar á árangursríkri menningu með aðferðum markþjálfunar (coaching). Mjög vönduð kennslugögn, markþjálfun, persónulegar vefsíður, snjallforrit ofl.
Þriggja daga vinnustofa um forystu með einskaklega vönduðum gögnum, LQ (Leadership Quotient) mati, hljóðbók, myndböndum, handbókum stjórnenda, markþjálfun (peer coaching) ofl.
Eins og hálfsdags vinnustofa til að efla ákvörðunartöku, skerpa skipulag og auka orku. 360° mat, snjallforrit, vönduð kennslugögn, tæknihandbók, ofl
Skapaðu og virkjaðu traust til árangurs. Frá hugtökum að hagtölum.
Lærðu að kortleggja tækifæri, greina þarfir og koma á sölusamtali á einstöku 12 vikna ferli. Námskeiðið Helping Your Clients Succeed þjálfar sölufólk í 1) réttu hugarfari, 2) áhrifaríkum aðferðum og 3) virkum verkfærum við árangur í sölu.