Okkar teymi
Guðrún Högnadóttir
Guðrún er framkvæmdastjóri og meðeigandi (Managing Partner) FranklinCovey Nordic Approach Leadership og fyrrverandi framkvæmdastjóri Opna háskólans í HR. Auk stjórnunarstarfa og kennslu við HR hefur hún unnið síðastliðin ár sem leiðbeinandi og markþjálfi (executive coach) í íslensku atvinnulífi og leitt fjölda vinnustofa um árangur liðsheilda og vinnustaða.
Guðrún er heilbrigðisrekstrarhagfræðingur að mennt og lauk MHA gráðu (Master of Healthcare Administration) frá University of North Carolina at Chapel Hill árið 1991 og BSPH gráðu (Bachelor of Science in Public Health) frá sama skóla með áherslu á sjúkrahússtjórnun og mannauðsstjórnun. Guðrún lauk AMP (Advanced Management Program) frá IESE/HR árið 2008. Guðrún er vottaður ACC markþjálfi hjá ICF (International Coaching Federation) og lýkur PCC vottun á þessu ári. Hún hefur starfað sem markþjálfi (executive coach) frá árinu 2003 með innlendum og erlendum stjórnendum. Guðrún starfaði við stjórnunarráðgjöf frá 1998 til 2003 einkum á sviði stefnumótunar, skipulags- og mannauðsmála og gæðastjórnunar og var meðeigandi Deloitte & Touche Ráðgjafar. Á árunum 1991 til 1997 var Guðrún fræðslustjóri Ríkisspítala og forstöðumaður gæða- og þróunarskorar Landspítalans. Guðrún hefur unnið með fjölda innlendra og erlendra vinnustaða sl. ár sem leiðbeinandi, ráðgjafi og lóðs auk þess að flytja erindi, stýra vinnufundum og kenna á háskólastigi. Sérsvið Guðrúnar eru persónulegur árangur og forysta, stefnumörkun, innleiðing stefnu, árangursstjórnun og markþjálfun. Guðrún situr jafnframt í stjórn nokkurra íslenskra fyrirtækja, fagfélaga og góðgerðarsamtaka.
Setttu þig í samband við Guðrúnu hér: gudrunhogna@franklincovey.is
Elín María Björnsdóttir
Elín er Global Senior Consultant Education hjá FranklinCovey Worldwide og Keynote Speaker. Elín ferðast um heiminn og heldur fyrirlestra, vinnustofur, hvatningarræður og erindi á ráðstefnum um heiminn, og hefur síðastliðið eitt og hálft ár starfað í 30 löndum. Áður starfaði Elín einnig að þróun Educational Practice í Evrópu í samstarfi við höfuðstöðvar FranklinCovey. Á árunum 2012-2014 gegndi Elín starfi sem framkvæmdastjóri FranklinCovey Education EMEA (Evrópa, Miðaustur lönd og Asía) en frá 2010-2012 byggði Elín upp Educational Practice í Svíþjóð frá grunni og innleiddi The Leader in Me prógrammið í skóla þarlendis. Elín starfar með skólastjórum, kennurum og starfsfólki skólanna í að skapa leiðtogamenningu innan skólans með aðferðarfræði The 7 Habits. Afraksturinn er einstök menning þar sem styrkleikar hvers og eins fá að njóta sín, bæði starfsmanna og barna. Verið er að innleiða The Leader in Me í u.þ.b. 3000 skólum víðsvegar um heiminn með einstökum árangri. Starf Elínar í Svíþjóð er brautryðjendastarf innan Evrópu í að innleiða leiðtogamenningu inn í skólaumhverfið á leikskóla, grunnskóla og framhaldsskólastigi. Elín hefur lagt grunninn að samstarfi FranklinCovey Education í Skandinavíu og LEGO Education og vinnur að áframhaldandi þróun þess samstarfs innan Evrópu. Undanfarið ár hefur Elín leitt verkefni með FranklinCovey skrifstofum í Asíu í brautryðjendastarfi að byggja upp leiðtogaþjálfun í menntakerfinu þarlendis svo sem Víetnam, Filippseyjum, Mongólíu, Hongkong, Singapore svo eitthvað sé nefnt.
Samhliða þessu starar Elín sem leiðbeinandi fyrir skólastjórnendur og leiðtoga fyrirtækja bæði sem snýr að þeim sjálfum sem einstaklingum og hvernig virkja megi mannauðinn með árangursríkum hætti, s.s. fyrir fyrirtæki sem LEGO, MAX Group Mongolia, VietcomBank og fleiri.
Settu þig í samband við Elínu Maríu hér: ella.bjornsdottir@franklincovey.com
Þóra Sif Svansdóttir
Þóra Sif er þjónustustjóri / Inside Business Partner IBP FranklinCovey á Íslandi og verkefnastjóri / Executive Assistant fyrir menntasvið FranklinCovey (Leader In Me).
Settu þig í samband við Þóru Sif hér:




Kristinn Tryggvi Gunnarsson
Kristinn Tryggvi er framkvæmdastjóri og stjórnunarráðgjafi hjá Expectus, stjórnendaþjálfari við Opna háskólann í HR og stundakennari við viðskiptadeild Háskólans í Reykjavík þar sem hann hefur kennt þjónustustjórnun, leiðtogafræði og breytingarstjórnun frá árinu 2003. Hann er viðskiptafræðingur að mennt og lauk B.S. prófi í stjórnun frá University of North Carolina og MBA prófi frá University of Georgia. Kristinn hefur víðtæka stjórnunarreynslu, starfaði í sjö ár hjá Íslandsbanka, lengst af sem útibússtjóri og fjögur ár hjá SPRON sem framkvæmdastjóri fyrirtækjasviðs og síðar markaðsmála. Á tímabilinu 2002-2008 starfaði Kristinn hjá Capacent, fyrst sem ráðgjafi, síðar framkvæmdastjóri ráðgjafarsviðs og síðustu tvö árin sem forstjóri Capacent á Íslandi. Kristinn hefur starfað með fjölmörgum af stærstu fyrirtækjum landsins á sviði stefnumótunar, markaðs- og þjónustumála. Hann hefur mikla reynslu af lóðsun og stjórnendaþjálfun og hefur auk réttinda frá FranklinCovey lokið þjálfun hjá Project Adventure, Corporate Lifecycles, Lego Serious Play, Blue Ocean Strategy, Corporat Coach U og SHL.
Settu þig í samband við Kristinn hér:

Ragnar Þórir Guðgeirsson
Ragnar er ráðgjafi og stjórnarformaður Expectus. Hann hefur stýrt verkefnum fyrir mörg af stærstu fyrirtækjum landsins á sviði stefnumótunar, skipulagsvinnu, fjármála og breytingarstjórnunar. Hann hefur mikla reynslu á sviði endurbóta á ferlum, þróunar stjórnunarupplýsinga og notkunar upplýsingatækni til hagræðingar í rekstri. Reynsla Ragnars á sviði stjórnunar og fjármálaþekking hans sem endurskoðanda hafa skapað honum sérstöðu sem nýtist vel í innleiðingu stefnu og árangursstjórnun.
Hann er með löggildingu í endurskoðun 1992 og er Cand Oecon í viðskiptafræði 1989 frá Háskóla Íslands.
Settu þig í samband við Ragnar hér:

Sindri Sigurjónsson
Sindri er stjórnunarráðgjafi hjá Expectus. Hann hefur starfað með mörgum af stærstu fyrirtækjum landsins á hinum ýmsu sviðum, m.a. við stefnumótun, fjármála og árangurstjórnun, áætlanagerðir og við endurhönnun viðskiptaferla. Hann hefur mikla reynslu í að aðstoða fyrirtæki við að straumlínulaga ferla og bæta rekstur þeirra með því að nýta þau gögn sem til staðar eru í viðskiptakerfum fyrirtækja og breyta þeim í lykiltölur fyrir stjórnendur. Sindri er með MSc í aðgerðarrannsóknum og Bsc í iðnaðarverkfræði. Hann var áður forstöðumaður viðskiptaþróunar hjá Skeljungi og stýrði þar innleiðingu stefnumótunar, úrbótavinnu og uppsetningu stefnumarkandi mælinga hjá félaginu. Áður leiddi hann m.a. framleiðsluþróun hjá Actavis hf. og var í framkvæmdastjórn félagsins.
Settu þig í samband við Sindra hér:

Anna Björk Bjarnadóttir
Anna Björk er framkvæmdastjóri og stjórnunarráðgjafi hjá Expectus og framkvæmdastjóri Expectus Software. Anna Björk hefur áralanga reynslu sem leiðtogi og stjórnandi, starfði sem framkvæmdastjóri þjónustusviðs TDC AS í Noregi, sem framkvæmdastjóri einstaklingssviðs og síðar tæknisviðs hjá Símanum. Hún hefur stjórnað breiðri flóru verkefna og sviða hjá Símanum og þar áður TDC AS, eða allt frá þjónustumálum, sölu- og markaðsmálum, vöru- og viðskiptaþróun, yfir í alla tækniflóruna sem finna má á fjarskiptamarkaði.
Anna Björk hefur verið drifkraftur í stefnumótun og þróunarferli þessara fyrirtækja og í fararbroddi hjá Símanum í innleiðingu á samfélagslega ábyrgri starfsemi, sem og hjá Festu, miðstöð um samfélagsábyrgð fyrirtækja, þar sem hún var stjórnarformaður og leiddi stofnun og uppbyggingu þess félags. Þá starfaði hún sem ráðgjafi hjá Capacent 2007 – 2008, þar sem hún stýrði og tók þátt í fjölbreyttum verkefnum í stefnumótun og rekstri fyrirtækja og stofnana. Hjá Expectus hefur Anna Björk starfað með breiðri flóru íslenskra og alþjóðlegra fyrirtækja á sviði stefnumótunar og stjórnunar. Anna Björk er vottaður 4DX þjálfari frá FranklinCovey.
Settu þig í samband við Önnu Björk hér:

María Ellingsen
María er með BA gráðu í leiklist frá New York háskólanum og starfar sem leikari, leikstjóri og höfundur. María er vottaður þjálfari frá FranklinCovey í 7 Habits og Five Choices og er að ljúka þjálfun í Presentation Advantage frá FranklinCovey. Hún er með margra ára reynslu sem stjórnendaþjálfari og fyrirlesari og hefur kennt á fjölda námskeiða í Opna háskólanum í HR, í akademískum deildum skólans og hjá Capacent. María hefur unnið með námsefni FranklinCovey síðan 2007.
Settu þig í samband við Maríu hér:

Sigrún Þorgeirsdóttir
Sigrún starfar sjálfstætt sem verkefnastjóri og hefur haldið utan um fjölda ólíkra verkefna á undanförum árum. Meðal verkefna má nefna; verkefnastjóri TEDxReykjavík (2013), kosningastjóri Þóru Arnórsdóttur (2012) og verkefnastjóri fyrsta Þjóðfundarins í Laugardalshöll (2009) sem og Þjóðfundar um stjórnarskrá Íslands (2010). Sigrún hefur tekið að sér framleiðslu og fjármögnun nokkurra leiksýninga og var verkefna- og fararstjóri þegar farið var með hóp sérfræðinga til Palestínu og Botswana (2009) til að setja upp gervifætur. Á vorönn 2011 hóf hún að kenna eigið námskeið um þjónustu í Opna háskólanum.
Sigrún lærði hótelstjórnun í Les Roches í Sviss (1994) og viðskiptafræði við Anglia Ruskin University í Cambridge á Englandi (2003). Að auki er hún með alþjóðlega vottun (IPMA) í verkefnastjórnun frá Endurmenntun HÍ (2010). Áður en Sigrún hóf að starfa sjálfstætt var hún markaðs- og þjónustustjóri Einkabankaþjónustu Kaupþings banka í Lúxemborg og á Íslandi frá 2004. Frá árinu 2006 vann hún sem viðburðastjóri og síðar sem forstöðumaður viðburða- og ferðadeildar Kaupþings.
Settu þig í samband við Sigrúnu hér: