3) Skýrðu tilgang og stefnu
Lota 3: Skýrðu tilgang og stefnu þíns teymis
Modular Series: Clarify Your Team's Purpose and Strategy™
Leiðtogaþjálfun sem er sveigjanleg, hagnýt og árangursrík.
Áskorun
Starfsfólk sem skilur ekki hvernig starf þess fellur að lykilmarkmiðum og stefnu fyrirtækisins er í besta falli líklegt til að skila vinnu sem er einungis viðunandi fremur en framúrskarandi. Þegar leiðtogar tryggja ekki að starfsfólk hafi skýran skilning á hvernig framlag þess styður við heildartilgang fyrirtækisins er tíma og aðföngum sóað í marklausar aðgerðir og eril.
Því miður hefur ótrúlega lág prósenta einstaklinga raunverulegan skilning á hlutverki og tilgangi fyrirtækja sinna. Án skilnings á því hvernig störf þeirra hafa áhrif á tilgang fyrirtækisins mætir starfsfólk einungis lágmarki þeirra krafna sem gerðar eru til þess, fremur en hámarki þeirra.
Lausn
Skapaðu kerfi til að skýra tilgang og stefnu þíns teymis (Clarify Your Team’s Purpose and Strategy). Þetta öfluga námskeið hjálpar leiðtogum að skilja að skýrleiki á öllum stigum er nauðsynlegur til að ná árangri. Í námskeiðinu öðlast þeir skýran skilning á eigin tilgangi og hvernig starf þeirra fellur að hlutverki og stefnu fyrirtækisins.
Um námskeiðið
Þátttakendur læra síðan að skapa kristaltæra stefnu um hvernig framkvæma á markmið teyma í samhengi við hlutverk fyrirtækisins og fjárhagslega afkomu. Leiðtogar sem taka þátt í námskeiðinu öðlast eftirfarandi:
-
Hæfileikann til að tengja tilgang teymis þeirra við hlutverk, gildi og stefnu fyrirtækisins.
-
Leiðir sem hjálpa meðlimum teyma að skilja starf sitt og hvernig þeir hafa lykilhlutverki að gegna við framkvæmd markmiða fyrirtækisins.
-
Hæfileika, verkfæri og áætlun til að leiða teymi við framkvæmd mikilvægustu markmiða fyrirtækisins.
-
Skýr yfirlýsing um tilgang teymis (Team Purpose Statement) sem þeir geta deilt með sínum teymum.
Tímalengd þjálfunar
Fjórar klukkustundir
Fyrirkomulag þjálfunar
-
Fáðu FranklinCovey ráðgjafa til að annast þjálfun í þínu fyrirtæki
-
Fáðu vottun til að kenna þessa vinnustofu
-
Sæktu opna vinnustofu
Innifalið
-
Handbók þátttakenda (Participant guidebook)
-
Handbók um innleiðingu (Implementation handbook)
-
Fullt sett rafrænna verkfæra og sérvalið myndband úr námskeiðinu sem þú getur deilt með þínu teymi
Endurmenntunareiningar:
4 tímar við þjálfun (Contact Hours)
4 endurmenntunareiningar
Fræðstu nánar um endurmenntunareiningar.
Markmið
Forysta til framfara



Aðrir áhrifamiklir valkostir til árangurs
Umbreytingarferli árangursríkrar menningar. 3ja daga vinnustofa, 360° mat, vönduð námskeiðsgögn, App, markþjálfun (peer and team coaching).
Eins dags vinnustofa til aukins árangurs teyma - með 360° mati, íslenskum kennslugögnum, snallforriti ofl.
Tveggja daga vinnustofa til aukins árangurs stjórnenda. 360° mat, vönduð kennslugögn, peer coaching ofl.
Einsdags vinnustofa fyrir leiðtoga til innleiðingar á árangursríkri menningu með aðferðum markþjálfunar (coaching). Mjög vönduð kennslugögn, markþjálfun, persónulegar vefsíður, snjallforrit ofl.
Þriggja daga vinnustofa um forystu með einskaklega vönduðum gögnum, LQ (Leadership Quotient) mati, hljóðbók, myndböndum, handbókum stjórnenda, markþjálfun (peer coaching) ofl.