4) Brúaðu stefnu og framkvæmd
Lota 4: Brúaðu gjánna milli stefnu og framkvæmdar
Closing the Execution Gap™
Leiðtogaþjálfun sem er sveigjanleg, hagnýt og árangursrík.
Áskorun
Eru þínir stjórnendur að koma réttu hlutunum í framkvæmd með réttum hætti?
Í mörgum fyrirtækjum virðist allt það rétta vera fyrir hendi—hæfileikaríkt vinnuafl, öflugt viðskiptamódel með framúrskarandi vöru eða þjónustu—en árangurinn lætur á sér standa. Einhverra hluta vegna er ekki verið að framkvæma það sem er mikilvægast, og verðmætur tími og aðföng fara í það sem er ómikilvægt. Ef fyrirtæki hafa ekki skýra áætlun um framkvæmd mikilvægustu verkefna ná þau einungis miðlungsárangri ár eftir ár.
Lausn
Lærðu hvernig þú kemur réttu hlutunum í framkvæmd
Að koma á tengingu milli starfsfólks og mikilvægustu markmiða fyrirtækisins er lykillinn að því að brúa bilið milli þess að vita hvað þarf að framkvæma og því að framkvæma það. Að sjálfsögðu krefst skilvirk framkvæmd samt aga og ábyrgðar. Þetta öfluga námskeið varpar ljósi á hvað veldur því að fyrirtæki ná ekki þeim afköstum og árangri sem þau stefna að, og setur síðan fram auðskiljanlega áætlun um einbeitta framkvæmd. Þátttakendur tileinka sér verkfæri og hæfileika sem miða að því að hrinda mikilvægustu verkefnum í framkvæmd—kerfisbundið og ítrekað. Stjórnendur munu öðlast eftirfarandi:
-
Skilningur á hvernig framkvæmdarreglurnar fjórar (4 Disciplines of Execution) eru notaðar til að skapa kerfi sem skilar fyrirsjáanlegum árangri.
-
Hæfni til að greina meginmarkmið fyrirtækisins (Wildly Important Goals [WIGs]).
-
Leiðir til að innleiða staðla á vinnustaðnum sem vekja ábyrgðarkennd hjá starfsfólki.
-
Færni og verkfæri til að innleiða reglurnar fjórar og ná meginmarkmiðum.
-
Áætlun fyrir innleiðingu WIG skortöflu fyrirtækisins.
Innifalið
Þátttakendur í vinnustofunni fá eftirfarandi verkfæri til notkunar við innleiðingu reglnanna fjögurra á vinnustað sínum:
-
Handbók þátttakenda (Participant Guidebook)
-
Verkfæri á geisladisk (Tools CD)
-
DVD diskur þátttakenda (inniheldur m.a. sérvalið myndband úr námskeiðinu)
-
21 dags áskorun (21-day Challenge)
Ávinningur
Þátttakendur í vinnustofunni fá þjálfun í fjórum reglum um framkvæmd helstu forgangsverkefna. Þátttakendur læra eftirfarandi:
1. Greina meginmarkmið (WIGs).
2. Skilgreina og skapa framvirka mælikvarða sem byggja á raunhæfum aðgerðum.
3. Vekja ábyrgðarkennd fyrir því að ná árangri.
4. Skapa hvetjandi skortöflur.
Forysta til framfara


Aðrir áhrifamiklir valkostir til árangurs
Umbreytingarferli árangursríkrar menningar. 3ja daga vinnustofa, 360° mat, vönduð námskeiðsgögn, App, markþjálfun (peer and team coaching).
Eins dags vinnustofa til aukins árangurs teyma - með 360° mati, íslenskum kennslugögnum, snallforriti ofl.
Tveggja daga vinnustofa til aukins árangurs stjórnenda. 360° mat, vönduð kennslugögn, peer coaching ofl.
Einsdags vinnustofa fyrir leiðtoga til innleiðingar á árangursríkri menningu með aðferðum markþjálfunar (coaching). Mjög vönduð kennslugögn, markþjálfun, persónulegar vefsíður, snjallforrit ofl.
Þriggja daga vinnustofa um forystu með einskaklega vönduðum gögnum, LQ (Leadership Quotient) mati, hljóðbók, myndböndum, handbókum stjórnenda, markþjálfun (peer coaching) ofl.